Samfélagsmiðlar

Þeir sem komu í fyrra eyddu miklu meiru

Líkt og Túristi hefur áður rakið þá er full ástæða til að rýna betur í gögn um erlendra kortanotkun hér á landi. Ef við horfum hins vegar blint í tölurnar þá er niðurstaðan sú að neysla á hvern ferðamenn hefur dregist verulega saman milli ára.

Það verður sífellt flóknara að kortleggja neyslu erlendra ferðamanna hér á landi.

Strangar sóttvarnaraðgerðir tóku gildi í sumarlok árið 2020 og um leið dró verulega úr flugumferð. Í september innrituðu aðeins 10 þúsund útlendingar sig í flug frá Keflavíkurflugvelli og farþegar Icelandair voru svo fáir að félaginu hefði dugað að fljúga eina ferð á dag.

Neysla innanlands var því nær eingöngu á vegum heimamanna en samt sem áður nam erlenda kortaveltan 2,4 milljörðum króna í september 2020.

Sú upphæð jafngildir 2,7 milljörðum kr. í dag sem er tíund af erlendu kortaveltunni í nýliðnum september en þá mældist hún 26,8 milljarðar króna. Þetta er vísbending um að hluti þeirrar kortaveltu sem eignuð er ferðamönnum, til að mynda í úttektum Rannsóknarseturs verslunarinnar, er í raun á vegum íbúanna sjálfra.

Gera má fleiri fyrirvara við þessar kortaveltutölur en líkt og Túristi hefur bent á hefur notkun breskra greiðslukorta dregist óvenjulega mikið saman. Og það er líka staðreynd að fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja hefur flutt viðskipti sín til erlendra færsluhirða og þar með kemur kortavelta þessara fyrirtækja ekki lengur fram í tölum Rannsóknarseturs verslunarinnar.

Ferðamenn eru því líklegast að eyða meiru hér á landi en áður og hefur Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri, kallað eftir mati á þeirri skekkju sem þetta veldur.

Ef við horfum hins vegar blint tölurnar um erlenda kortanotkun og berum saman við talningu á útlendingum á Keflavíkurflugvelli þá er niðurstaðan sú að meðaleyðsla hvers og eins útlendings nam 151 þúsund krónum í síðasta mánuði.

Það er samdráttur um sextán prósent í samanburði við september í fyrra þegar veltan nam 175 þúsund krónum þegar tekið er tillit til bæði verðlagsþróunar og gengisvísitölu. Aftur á móti kemur nýliðinn mánuður betur út en september á árunum 2016 til 2019. Þá eyddu ferðamennirnir að jafnaði 141 til 146 þúsund krónur.

Það er hins vegar lítill tilgangur í því að horfa til ársins 2020 eins og rakið er hér að ofan en það ár þó með í töflunni hér fyrir neðan.

Eins og gefur að skilja þá sýnir notkun greiðslukorta aðeins hluta af þeirri neyslu erlendra ferðamanna hér á landi. Þeir sem ferðast á vegum erlendra ferðaskrifstofa hafa til að mynda oft á tíðum borga fyrir stóran hluta ferðalagsins áður en hingað er komið.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …