Samfélagsmiðlar

Metárið sem er í vændum

Eigi ný ferðamannaspá að ganga eftir á fyrsta fjórðungi næsta árs þá þarf framboð á flugi að aukast umtalsvert. Lágt hlutfall tengifarþega hjá Icelandair og Play myndi líka hjálpa til.

Mynd: ÓJ

Ferðamenn við Strokk.

Ráðgjafarfyrirtækið Intellecon kynnti í síðustu viku, fyrir hönd Ferðamálastofu, sína fyrstu formlegu spá um meginstærðir í ferðaþjónustu á næstu árum. Og það er skemmst frá því að segja að þar er gert ráð fyrir metfjölda ferðamanna til landsins á næsta ári eða tæplega 2,4 milljónum ferðamanna.

Það er ögn meira en metárið 2018 þegar héðan flugu rúmlega 2,3 milljónir ferðmanna. Það ár var flugumferðin þó töluvert meiri en gert er ráð fyrir eftir áramót samkvæmt ferðagögnum Túrista.

Framboð á áætlunarflugi í janúar og febrúar næstkomandi er sextán prósent minna en það var á sama tíma fyrir fimm árum síðan. Engu að síður gerir spáin ráð fyrir að þá verði fjöldi ferðamanna á pari við það sem var fyrir fimm árum síðan.

Í mars á næsta ári er svo reiknað með að 183 þúsund erlendir ferðamenn fljúgi frá Keflavíkurflugvelli eða 10 þúsund fleiri en metárið 2018. Á dagskrá flugvallarins eru hins vegar fjögur hundruð færri brottfarir en voru þennan sama mánuð fyrir fimm árum síðan. Samdrátturinn nemur fimmtungi.

Af þeim sökum þarf hver þota sem hér lendir í mars að vera með 28 fleiri erlenda ferðamenn að jafnaði en þoturnar sem komu í mars 2018 ef spá Intellecon á rætast.

Til að auka líkurnar á ferðamennirnir verði svona margir í hverri þotu þá þarf hlutfall tengifarþega hjá Icelandair og Play að haldast í lægri kantinum. Þannig aukast líkurnar á að fleiri laus sæti verði fyrir ferðamenn á leið til Íslands.

Sumaráætlun fluggeirans hefst í lok mars en þessar vikurnar eru flugfélög að leggja lokahönd á dagskrána. Ekki liggur fyrir hversu miklu Icelandair ætlar að bæta við en umsvif félagsins, í flugferðum talið, voru í júlí sl. um 90 prósent af því sem var 2018.

Til að fylla skarð Wow Air þyrfti Play svo að þrefalda flugáætlun sína frá nýliðnu sumri en ljóst er að það gerist ekki. Flugfloti félagsins mun aðeins stækka úr sex þotum í tíu.

Spá Intellecon gerir ráð fyrir áframhaldandi vexti í komum ferðamanna til Íslands og fjöldinn fari uppí 2,8 milljónir ferðamanna á þarnæsta ári. Árið 2025 verði þeir rétt um þrjár milljónir. Hafa ber í huga að þarna er aðeins horft til fjölda þeirra sem fara um Keflavíkurflugvöll.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …