Samfélagsmiðlar

Líka mettekjur hjá Norwegian og tómu sætin aldrei færri

Flugfélögin njóta þess að farþegar setja ekki hátt farmiðaverð fyrir sig.

Í sumar nýtti Norwegian 70 flugvélar en stefnt er að því að flotinn telji 82 þotur í lok næsta árs. Þar á meðal verða nýjar Boeing Max8 vélar.

Sumarvertíðin hjá Norwegian var góð líkt og hjá svo mörgum öðrum flugfélögum enda tóku margir því fagnandi að geta ferðast án sóttvarnartakmarkanna. Og óvenju há fargjöld héldu ekki aftur af fólki eins og sést á uppgjörum flugfélaga.

Farþegatekjurnar þeirra flestra í sumar voru hærri en áður og þoturnar þéttsetnari en dæmi eru um. Þannig var það hjá Icelandair og líka hjá Norwegian en stjórnendur norska félagsins kynntu í morgun uppgjör á þriðja ársfjórðungi.

Og niðurstaðan var rekstrarhagnaður (Ebit) upp á um einn milljarð norskra króna eða 14,3 milljarða íslenskra. Til samanburðar var rekstrarhagnaður Icelandair á þriðja ársfjórðungi 12,9 milljörðum króna en umsvif Icelandair eru miklu minni en Norwegian.

Rekstur félaganna er líka ólíkur á margan hátt. Innanlandsflug og stuttar ferðir innan Skandinavíu eru stór hluti af rekstri Norwegian en félagið gerir hins vegar ekkert út á fraktflutninga. Sá liður er stór í rekstri Icelandair.

Á fundi með fjárfestum í morgun fór Geir Karlsen, forstjóri Norwegian, yfir horfurnar næstu misseri og sagði útlitið gott fyrir október og nóvember en ennþá væri fólk að bóka flug með stuttum fyrirvara. Karlsen sagðist því ánægður með þá ákvörðun að draga töluvert úr framboði á komandi vetri.

Íslandsflug Norwegian lendir meðal annars undir niðurskurðarhnífnum því flug félagsins hingað frá Ósló verður sett á ís frá miðjum nóvember og fram í byrjun febrúar ef frá eru taldar nokkrar ferðir yfir jól og áramót.

Þotur Norwegian verða því sjaldséðar við Leifsstöð á næstunni en fyrir heimsfaraldur var Norwegian mjög umsvifamikið hér á landi. Á tímabili bauð félagið til dæmis upp á beint flug til Íslands frá fimm spænskum flugvöllum. Stjórnendur Norwegian lokuðu hins vegar starfsstöðvum félagsins fyrir utan Skandinavíu þegar Covid-19 kom upp en nú eru þeir að byggja upp reksturinn á Spáni á nýjan leik og ætla einnig að hefja flugrekstur í Lettlandi.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …