Samfélagsmiðlar

Vægi tengifarþega hjá Play óbreytt milli mánaða

Tekjur Play á þriðja ársfjórðungi, júlí til september, stóðu ekki undir áætlun sem skrifast helst á of hátt hlutfall farþega sem eingöngu millilenda á Keflavíkurflugvelli á leið sinni milli meginlands Evrópu og Bandaríkjanna. Þessir tengifarþegar skila Play nefnilega ekki eins miklu og erlendir ferðamenn á leið í Íslandsreisu líkt og fram kom í máli stjórnenda flugfélagsins þegar uppgjör sumarvertíðarinnar var kynnt í þarsíðustu viku.

Play birtir ekki sundurliðun á farþegahópnum í mánaðarlegum flutningatölum sínum en það gerir aftur á móti Icelandair og líka Isavia. Þar með fæst góð mynd af því hversu hátt hlutfall tengifarþega er hjá Play enda engin önnur flugfélög en þau íslensku sem nota Leifsstöð sem skiptistöð.

Og það sést af þessum tölum að hlutfall tengifarþega hjá Play var mun hærra í ágúst en það var í júlí og september líkt og Túristi hefur áður farið yfir. Í ágúst var þriðji hver farþegi Play á leið alla leið yfir Atlantshafið sem var nokkrum prósentustigum hærra hlutfall en hina mánuðina eins sjá má hér fyrir neðan.

Þar sést líka að síðasta mánuði, október, fór hélst vægi tengifarþega á sömu slóðum eða undir þrjátíu prósentum.

Hjá Icelandair lækkaði hlutfallið aftur á móti umtalsvert í október eða úr 48 prósent í 38 prósent sem er í takt við það sem gerðist árið 2019. En líkt og fram kom í viðtali Túrista við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, þá er framlegð þess félags af tengifarþegum alls ekki alltaf minni en af öðrum.

„Í leiðakerfi Icelandair eru um 700 tengimöguleikar og það er því ekki hægt að horfa á þá alla eins. Við erum með ákveðna stöðu á vissum mörkuðum þar sem við erum einfaldlega að bjóða upp á langbestu tengingarnar og bestu vöruna. Staðan er önnur annars staðar, tökum sem dæmi London og New York. Þar er framboð af beinu flugi mjög mikið og við því í allt annarri stöðu en á ýmsum öðrum leiðum, til að mynda í Raleigh því framboð á Evrópuflugi frá því svæði er mjög lítið,“ útskýrði Bogi Nils.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …