Samfélagsmiðlar

Almennir fjárfestar sýndu útboðinu ekki áhuga

Tuttugu stærstu hluthafar Play ætla að leggja félaginu til 2,3 milljarða króna líkt og tilkynnt var í byrjun nóvember þegar flugfélagið birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung. Þar var niðurstaðan verri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Til að gæta jafnfræðis var minni hluthöfum einnig boðið að kaupa nýtt hlutafé í Play og í boði voru 78 milljónir hluta sem kostuðu 14,6 krónur hver og einn. Útboðið hófst á mánudagsmorgun og samkvæmt tilkynningu frá Play í gærkvöld var þátttakan hverfandi „eðli málsins samkvæmt“ eins og þar segir. Er þá vísað til þess að útboðsgengið var hærra en markaðsgengið eins og sjá má hér fyrir neðan.

Þessar 78 milljónir hlutabréfa voru því ekki gefin út en aftur á móti samþykkti hluthafafundur Play í gær að gefa út bréfin fyrir 20 stærstu hluthafana. Þar með fjölgar útgefnum hlutum í Play um 22 prósent og markaðsverð félags hækkar um 2,1 milljarð króna.

Verðmæti hinna nýju hluta hefur því lækkað um 200 milljónir frá því að stærstu hluthafarnir skuldbundu sig til að kaupa þá fyrir 2,3 milljarða fyrir mánuði síðan. Með nýjum bréfunum fylgir þó réttur til að kaupa fleiri bréf á sama verði í ársbyrjun 2024.

Birgir Jónsson, forstjóri Play, hafði áður sagt að hann ætti ekki sérstaklega von á því að mikið komið inn í hlutafjárútboðinu fyrir almennu hluthafana enda væri það haldið til að gæta jafnræðis meðal hluthafa og bjóða öllum sömu kjör á viðbótarhlutafé. 

„En það væri gaman ef smærri hluthafar vildu taka þátt en það er ekki stórt atriði. Félagið er sterkara eftir þessa aukningu frá þeim stærstu og það er öllum hluthöfum til hagsbóta líka,“ útskýrði Birgir.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …