Samfélagsmiðlar

Engin áform um að hefja flug á ný til Íslands

Sumarið 2018 gátu farþegar í Dallas í Texas valið úr ferðum þriggja flugfélaga til Íslands.

Í lok sumarvertíðar árið 2017 tilkynnti Wow Air að flug til bandarísku borgarinnar Dallas myndi hefjast vorið eftir. Aldrei áður höfðu áætlunarferðir héðan til Texas fylkis staðið til boða. Það liðu svo ekki nema nokkrir dagar þangað til Icelandair setti líka í sölu flug til Dallas og þar með ljóst að íslensku félögin myndu bæði blanda sér í baráttuna um farþega á leið milli Evrópu og Dallas. Um leið fengu íbúar borgarinnar kost á að ferðast hingað til lands án millilendingar.

Á Dallas flugvelli er helsta starfsstöð flugfélagsins American Airlines en þegar þarna var komið við sögu hafði félagið aldrei spreytt sig á Íslandsflugi. Og stjórnendur Isavia áttu ekki von á að breyting yrði þar á en skyndilega bárust þau boð frá bandaríska félaginu hingað til lands, eftir óhefðbundnum leiðum, að áætlunarflug til Íslands frá Dallas yrði á dagskrá frá og með vorinu.

Sumarið 2018 voru það því þrjú flugfélög sem héldu úti reglulegum ferðum milli Íslands og Dallas borgar í Texas.

Og óhætt er að segja að það hafi ýtt undir straum ferðamanna hingað til lands frá Dallas því nærri eitt hundrað þúsund farþegar nýttu sér þessar flugsamgöngur og miðað við þær upplýsingar sem Túristi fékk frá flugmálayfirvöldum vestanhafs þá voru bandarísku ferðamennirnir, sem hingað komu frá Dallas, um 24 þúsund. Það eru nokkru fleiri ferðamenn en heimsóttu Ísland frá Sviss á sama tíma.

Þrátt fyrir fjöldann þá var ekkert Íslandsflug í boði frá Dallas sumarið eftir. Wow Air var nefnilega farið á hausinn og Icelandair var í vandræðum vegna kyrrsetningar Max þotanna og setti aðra áfangastaði í forgang. Og þegar ljóst var að íslensku félögin myndu ekki snúa aftur til Dallas þá ákváðu stjórnendur American Airlines að skipta um kúrs og færa Íslandsflugið til Philadelphia og skora Icelandair á hólm þar í borg.

Áætlunarflug American Airlines frá Philadelphia var svo fellt niður áður en jómfrúarferðin var farin svo kom heimsfaraldurinn árið eftir. Og samkvæmt svörum frá bandaríska flugfélaginu í dag þá eru engin áform um að hefja áætlunarflug til Íslands á ný, hvorki frá Dallas, Philadelphia eða öðrum borgum.

Hvort sú afstaða breytist ef til að mynda Icelandair og Play setja stefnuna á höfuðvígi American Airlines á svo eftir að koma í ljós.

Helstu keppinautar American Airliens vestanahafs, Delta og United, ætla sér hins vegar áfram stóra hluti í ferðum til Íslands. Það fyrrnefnda mun fljúga hingað frá New York, Detroit og Minneapolis og það síðarnefnda frá Chicago og New York.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …