Stór hluti af þotunum í flota SAS eru teknar á leigu og síðustu misseri hafa stjórnendur flugfélagsins stillt þessum leigusölum upp við vegg og beðið um betri kjör. Segja má að það halli á viðsemjendur flugfélagsins því SAS nýtur stuðnings bandarískra dómstóla í þessum aðgerðum sínum því félagið nú í svokölluðu Chapter-11 ferli.
Það eru þó ekki allir flugvélaeigendur til í að gefa eftir og viðræður við japanskan eiganda Airbus 350 breiðþotu hafa dregist á langinn. SAS þarf nauðsynlega á þotunni að halda og til að tryggja að flugáætlunin riðlist ekki í sumar þá hefur skandinavíska flugfélagið leigt minni breiðþotu, Airbus 330, frá portúgalska leiguflugfélaginu Hifly. Þetta er sama fyrirtæki og leigir þotu til Niceair á Akureyri.
Sú þota var reyndar kyrrsett á flugvellinum í Kaupmannahöfn í gær stuttu fyrir brottför til Akureyrar. Ástæðan er deila milli eiganda flugvélarinnar og leigusala samkvæmt því sem fram kom í frétt Mbl í gær. Þar var haft eftir Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra og stofnanda Niceair, að deilurnar tengist ekki því félagi heldur séu á milli flugvélaeigandans og leigusalans. Farþegar Niceair komust frá Kaupmannahöfn til Akureyrar í gær með annarri leiguvél.
Samkvæmt vef Flight Radar var þotunni sem Niceair hefur leigt flogið til Írlands seinnipartinn í gær.