Samfélagsmiðlar

Inga Hlín framkvæmdastjóri nýrrar markaðsstofu

Inga Hlín Pálsdóttir.

Inga Hlín Pálsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmastjóra Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og hefur störf í byrjun maí. Markaðsstofan er markaðs- og áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið og var stofnuð með formlegum hætti 3. apríl sl.

Það eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins sem eru stofnaðilar stofunnar. 

“Við erum gríðarlega ánægð að fá annan eins reynslubolta til að leiða nýstofnaða Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Inga Hlín hefur mikla reynslu af stefnumótun og innleiðingu stefnumótunarverkefna, bæði í ferðaþjónustu og fyrir aðrar atvinnugreinar og það er ómetanlegt fyrir verkefnin okkar framundan”, segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, í tilkynningu.

Inga Hlín hefur undanfarin ár starfað sem alþjóðlegur ráðgjafi og fyrirlesari. Helstu verkefni hafa snúið að samstarfi fyrirtækja og opinberra aðila, stefnumótun, markaðssetningu, breytingastjórnun og sjálfbærni í tengslum við svæði og borgir. Hún hefur starfað með ýmsum aðilum í tengslum við ráðgjöf og má þar helst nefna Austurbrú, Reykjavíkurborg og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samhliða starfaði Inga Hlín hjá norrænu ráðgjafarfyrirtæki á sviði þróunar, nýsköpunar og markaðssetningar svæða. 

Inga Hlín er með B.Sc. próf í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og M.Sc. próf í alþjóðamarkaðsfræði frá The University of Strathclyde í Skotlandi. Hún starfaði áður í yfir áratug hjá Íslandsstofu og Útflutningsráði, lengst sem forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina. Þar stýrði hún m.a. kynningar- og markaðsstarfi á áfangastaðnum Íslandi í samstarfi við hagaðila og fór allt markaðsstarf fram undir merkjum Inspired by Iceland. Þá stýrði hún samstarfsverkefnunum Ísland allt árið og Iceland Naturally auk þess sem hún sat í stjórn NATA ferðamálasamstarfsins.

Alls bárust 37 umsóknir um starfið og þakkar stjórn markaðsstofunnar umsækjendum fyrir áhugann.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …