Samfélagsmiðlar

Turkish Airlines ætla að tvöfalda flugvélaflota og farþegafjölda

Turkish Airlines hefur vaxið hröðum skrefum siðasta áratuginn. Þjóðarflugfélagið hefur notið þar góðs af nýjum flugvelli í Istanbul. Framundan er enn meiri vöxtur, samkvæmt áætlun sem nær til 100 ára afmælisársins 2033.

Á Istanbul-flugvelli

Í síðustu viku kynnti Turkish Airlines þróunaráætlun sína næstu 10 árin. Óhætt er að segja að hún sé metnaðarfull. Tyrkneska félagið er þegar meðal stærstu flugfélaga í heimi og stjórnendur ætla sér að styrkja stöðu þess enn betur á heimskortinu. Á meðan heimsfaraldurinn geisaði var Turkish Airlines með umfangsmeiri starfsemi en flest önnur félög. Nýi flugvöllurinn í Istanbul var að fullu tekinn í notkun 2019 og hefur hann styrkt verulega stöðu þjóðarflugfélagsins. Flugvöllurinn er sá fjölfarnasti í Evrópu.

Stefnt er að því að árið 2033 verði Turkish Airlines með yfir 800 flugvélar í rekstri. Nú er það með 435. Þá er gert ráð fyrir að farþegafjöldinn hafi tvöfaldast og verði 170 milljónir. Vonast Tyrkirnir til að tekjurnar á ári fari úr 18 milljörðum Bandaríkjadollara 2022 í 52 milljarða 2033 þegar 100 ára afmælinu verður fagnað.  

Áætlun um þróun í flota og farþegafjölda Turkish Airlines – MYND: Turkish Airlines

Starfsmenn Turkish Airlines og dótturfélaga eru nú 75 þúsund en vonir standa til að þeir verði tvöfalt fleiri að tíu árum liðnum – eða 150 þúsund. Félagið stefnir að því að auka notkun á SAF-eldsneyti og ná markmiðinu um kolefnishlutleysi árið 2050.

Áfangastöðum Turkish Airlines verður fjölgað úr 350 í 400. Erlendum áfangastöðum fjölgar úr 295 í 345 á þessum næstu 10 árum. Keflavíkurflugvöllur er ekki þar á meðal. Hinsvegar flýgur tyrkneska félagið til höfuðborga Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Danmerkur, auk Billund og Gautaborgar og ráðgerir flug til Álaborgar.

Turkish Airlines varð aðili að Star Alliance árið 2008.

Vél Turkish Airlines á flugi – MYND: Rohit Tandon/Unsplash
Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …