Samfélagsmiðlar

Norwegian rauk upp eftir nýtt verðmat en Icelandair dalar eftir sitt

Markaðsvirði Norwegian hefur hækkað um nærri 20 milljarða króna í vikunni. Félagið er nærri tvöfalt meira virði en Icelandair í dag.

Þegar kauphöllin í Ósló opnaði í byrjun vikunnar kostaði hver hlutur í flugfélaginu 10,6 norskra krónur en tveimur sólarhringum síðar er gengið komið upp í 12,1 og nemur hækkunin 14 prósentum. Skýringin á þessari miklu hækkun liggur í nýju verðmati sem tvö verðbréfafyrirtæki gáfu út á mánudagsmorgun.

Hjá því fyrra, frá DNB Markets, var matið á Norwegian fært upp í 18 krónur á hlut og það seinna, Pareto Securities, verðlagði bréfin ennþá hærra eða á 20 krónur. Hlutabréfin í Norwegian voru þá tvöfalt meira virði en þau kostuðu í kauphöllinni á mánudagsmorgun að mati fyrirtækjanna tveggja.

Greinendurnir vísuðu í nýtt uppgjör Norwegian máli sínu til stuðnings en á fimmtudaginn í síðustu viku gerði flugfélagið upp fyrsta fjórðung ársins. Þá lét forstjóri Norwegian reyndar þau orð falla að greinendur ættu kannski að endurskoða þágildandi verðmat á flugfélaginu og benti hann á lágt olíuverð, góða bókunarstöðu og há fargjöld.

Gengi hlutabréfa í Norwegian hefur hækkað um 64 prósent í ár. Icelandair um 12 prósent. – Mynd: Norwegian

Hér heima var þróunin allt önnur.

Á föstudag í síðustu viku birti greinendinn Jakobsson Capital nýtt verðmat fyrir Icelandair sem hljóðaði upp á 3,07 krónur á hlut sem var 60 prósent hærra verð en borga þurfti fyrir bréfin á markaði þann daginn. Gengi bréfa í Icelandair stóð hins vegar í stað á föstudaginn og hefur svo lækkað um 3 prósent í vikunni.

Í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna og kauphöllin í Ósló lokuð. Hér heima verður hægt að sýsla með bréf Icelandair og það kemur þá í ljós hvernig fjárfestar taka þeim tíðindum að tekið verði tillit til legu Íslands þegar breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildum verður breytt um áramótin. Ekki liggur þó fyrir hvernig þessi aðlögun verður framkvæmd nema að því leyti að Ísland fær losunarheimildir sem hægt verður að úthluta til flugfélaga árin 2025 og 2026.

Frá og með árinu 2027 er það markmið Evrópusambandsins að allar flugferðir frá Evrópu verði hluti af viðskiptakerfinu en í dag nær kerfið bara til evrópskra flugfélaga.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …