Samfélagsmiðlar

Icelandair og Turkish Airlines hefja samstarf

Icelandair og Turkish Airlines undirrituðu í morgun samstarfssamning sem gerir viðskiptavinum félaganna fært að nýta sér tengingar milli leiðakerfa. Turkish Airlines flýgur þó hvorki til Íslands né Icelandair til Tyrklands.

Frá undirritun samstarfssamnings Turkish Airlines og Icelandair

Samningurinn var undirritaður í Istanbul fyrr í dag á aðalfundi IATA, alþjóðasamtaka flugfélaga. Í fréttatilkynningu segir að samningurinn stórauki framboð á þægilegum tengingum þar sem viðskiptavinir ferðast á einum farmiða og innrita farangurinn alla leið á lokaáfangastað.  

Turkish Airlines er í hópi stærstu flugfélaga heims. Það var stofnað árið 1933 og á félagið aðild að Star Alliance-samstarfinu. Í flugvélaflota Turkish Airlines eru 416 vélar og flýgur félagið til 344 áfangastaða í 129 löndum.  

Það er ánægjulegt að undirrita þennan samstarfssamning við Icelandair. Með samningnum viljum við auka úrval ferðamöguleika fyrir viðskiptavini okkar. Einnig erum við ánægð með að þessi samstarfssamningur við Icelandair mun skila miklum viðskiptalegum ávinningi til beggja flugfélaga,“ er haft eftir Bilal Ekşi, forstjóra Turkish Airlines í fréttatilkynningu Icelandair. Þar fagnar Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, líka samningnum við þetta stóra flugfélag: Það er spennandi að tilkynna Turkish Airlines, það flugfélag sem flýgur til flestra landa í heiminum, sem nýjasta samstarfsflugfélag okkar. Okkar stefna er að gera samstarfssamninga við flugfélög sem veita góða þjónustu og opna ný og spennandi ferðatækifæri. Með þessum nýja samningi tengjum við á milli leiðakerfa flugfélaganna og stóraukum ferðamöguleika fyrir viðskiptavini okkar.“ 

Nýverið kynnti Turkish Airlines þróunaráætlun sína næsta áratuginn. Stefnt er að því að árið 2033 verði Turkish Airlines með yfir 800 flugvélar í rekstri.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …