Samfélagsmiðlar

Seldu mun fleiri áfengislítra en fyrir heimsfaraldur

Það seldust rúmlega 24 þúsund lítrar af áfengi í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins í fyrra samkvæmt nýrri ársskýrslu. Aðeins tvisvar sinnum áður hefur salan verið meiri í lítrum talið.

Það var árin 2020 og 2021 þegar sóttvarnaraðgerðir við landamæri gerðu ferðalög milli landa oft á tíðum erfið.

Sú staða endurspeglast í notkun íslenskra greiðslukorta í fríhöfnum landsins á þessum árum. Árið 2019 keyptu Íslendingar til að mynda tollfrjálsan varning fyrir um 8 milljarða króna en um leið og kórónuveirufaldurinn hófst hrundi salan og nam rétt um 2 milljörðum árið 2020. Árið eftir urðu utanlandsferðir ögn einfaldari og um leið jókst sala á tollfrjálsum varningi en nam þó aðeins um þremur milljörðum króna árið 2021.

Þessi þróun sést líka vel í ársreikningum Fríhafnarinnar því árið 2019 nam vörusalan þar um 13 milljörðum króna en fór niður rúma þrjá milljarða árið 2020 og nam fimm milljörðum 2021.

Landamæri opnuðust upp á gátt í byrjun síðasta árs og velta Fríhafnarinnar rauk upp í 12 milljarða í fyrra og þá voru íslensk greiðslukort nýtt til að borga fyrir 7,5 milljarða kr. af tollfrjálsum varningi. Þessar upphæðir eru litlu lægri en sem nemur kortaveltunni árið 2019 en þá er ekki tekið tillit til verðlagsþróunar.

Þó kaup á tollfrjálsum varningi í fyrra hafi verið í takt við árið 2019 þá var salan í ÁTVR, í lítrum talið, um sjö prósent meiri en allt árið 2019. Til viðbótar við áfengissölu ÁTVR og Fríhöfnarinnar þá hafa netverslanir með vín sótt í sig veðrið hér á landi frá því í heimsfaraldrinum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …