Samfélagsmiðlar

Íslensku félögin bæði mætt til Prag en sjá ekki sömu tækifærin á tékkneska markaðnum

Íslensku flugfélögin munu fljúga samtals sex sinnum í viku til Prag nú í sumar og haust.

Fyrsta áætlunarflug Icelandair til Prag í Tékklandi var á dagskrá í dag og þar með ríkir samkeppni á ný um farþega á leið milli Íslands og höfuðborgar Tékka. Play sat eitt að þessari flugleið í fyrra en fyrir heimsfaraldur hélt Czech Airlines, þjóðarflugfélag Tékka, úti tíðum ferðum til Keflavíkurflugvallar og spreytti sig líka á áætlunarferðum hingað frá Kaupmannahöfn.

Czech Airlines, sem er eitt elsta flugfélag í heimi, komst þó varla í gegnum Covid-faraldurinn og er í dag bara með eina flugvél. Íslandsflugið heyrir því sögunni til sem og ferðir til allra áfangastaða nema Parísar.

Áður flugu þotur tékkneska félagsins einnig vestur um haf og þá til borga eins og Chicago, Detroit og New York og Toronto. Allar þessar eru í dag hluti af leiðakerfi Icelandair og í tilkynningu kemur Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, inn á þessa stöðu.

Þota Icelandair fékk hefðbundar móttökur í jómfrúarferðinni á Václav Havel flugvelli í Prag í dag. Mynd: Icelandair

„Við sjáum mikil tækifæri í að bjóða morgunflug til Prag sem tengist vel inn í Norður-Ameríku flugið okkar. Sem stendur eru fáar flugtengingar frá Prag til Bandaríkjanna og Kanada og munum við því stórbæta tengingar á milli þessara markaða auk þess að bjóða upp á þægilega brottfaratíma milli Íslands og Prag.“

Stjórnendur Play horfa öðrum augum til Tékklands því það þotur félagsins munu fljúga seinni part dags til Prag og sú tímasetning hentar illa fyrir tengifarþega nema þeim sem nenna að eyða nóttinni í Leifsstöð á leiðinni yfir hafið. Play virðist því fyrst og fremst horfa til þess að fljúga Íslendingum til Prag og Tékkum til Íslands.

Icelandair ætlar líka að fljúga oftar til Prag eða fjórum sinnum í viku á meðan þotur Play halda þangað helmingi sjaldnar.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …