Samfélagsmiðlar

Stóri munurinn liggur í miklu færri tengifarþegum

Nýjar farþegatölur Icelandair sýna framfarir frá síðasta ári. Það kemur svo í ljós þegar félagið gerir upp núverandi ársfjórðung hvort breytt vægi farþegahópa hafi áhrif á afkomuna.

Frá fyrstu ferð Icelandair til Prag í síðustu viku.

Það voru 343 þúsund farþegar sem flugu til og frá Keflavíkurflugvelli með Icelandair í maí sem er viðbót 18 prósent frá sama tíma í fyrra. Óseldu sætin í þotunum voru líka mun færri núna en þá, sætanýtingin í síðasta mánuði var 80,7 prósent en aðeins 74,1 prósent í fyrra.

Samanburðurinn við maí árið 2019, fyrir heimsfaraldur, kemur hins vegar öðruvísi út.

Þá voru farþegar í alþjóðaflugi Icelandair 419 þúsund og að sætanýtingin 82,5 prósent. Hún var sem sagt hærri þó Icelandair hafi þá almennt verið að fljúga stærri flugvélum endavoru nýju Boeing Max þoturnar kyrrsettar í ársbyrjun 2019.

Hjá Icelandair er farþegahópnum í millilandafluginu skipt í þrennt; ferðamenn á leið til Íslands, þau sem hefja ferðalagið á Íslandi og svo þeir sem millilenda hér á leið milli Norður-Ameríku og Evrópu. Í maí árið 2019 og voru fyrrnefndu hóparnir tveir jafn fjölmennir og núna. Munurinn er í raun sáralítill eins og sjá má hér fyrir neðan.

Hins vegar voru tengifarþegarnir um þriðjungi færri í nýliðnum maí eða 146 þúsund samtals en 217 þúsund í maí 2019. Vægi þessa hóps var því núna aðeins 43 prósent en 52 prósent í maí 2019. Þessar breytingar eru í takt við það gerst hefur hjá Icelandair síðustu mánuði.

Hlutfall tengifarþega er nefnilega mun lægra núna en það var á árum áður en það hefur reyndar hækkað síðustu tvo mánuði.

Það sem af er yfirstandandi ársfjórðungi er vægi tengifarþega 43 prósent og nú er að sjá hvaða áhrif júní hefur á þetta hlutfall. Á sama fjórðungi á árunum fyrir heimsfaraldur var hlutfall tengifarþega mun hærra, á öðrum ársfjórðungi árið 2017 var það 54 prósent en þá var Icelandair síðast réttum megin við núllið á þessum árstíma.

Árið 2017 var olíuverðið reyndar mun lægra en nú er í dag en fargjöldin líklegast nokkru lægri enda hefur ástandinu sem núna ríkir verið líkt við draumastöðu flugrekandans. Eftirspurn eftir farmiðum er mikil þrátt fyrir óvenju hátt verðlag.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …