Samfélagsmiðlar

Rúmleikfimi á Ólympíuleikum í sumar

Vettvangur leikanna á Signu - Tölvugerð mynd: OL24/Florian Hulleu

Öll þau nándarhöft sem lögð voru á íþróttamenn á Ólympíuleikunum í Tókýó árið 2021 verða afnumin þegar ólympíuleikarnir í París hefjast í sumar. Í Tókýó var farið fram á það við afreksfólkið sem tók þátt í leikunum að það forðaðist alla óþarfa nánd og snertingu til að koma í veg fyrir Covid-smit. 

Ólympíuleikarnir og Ólympíumót fatlaðra verða haldnir í París á tímabilinu frá 26. júlí til 8. september og er búist við gífurlegum fjölda ferðamanna í borginni. Öfugt við leikana í Seoul 1988 gera skipuleggjendur ólympíuleikanna í París ráð fyrir mikilli rúmleikfimi meðal þeirra 10.500 þátttakenda sem koma til borgarinnar og er talið að leikarnir verði í þetta sinn hátíð nálægðar og snertingar. Stjórnendur og leikanna hafa boðað að 300.000 smokkum verði dreift til íþróttamannanna, til íþróttablaðamanna og líka til starfsmanna leikanna. 

Hlauparar við Sigurbogann – MYND: OL24

Það er ekki nýjung að smokkum sé dreift á ólympíuleikunum. Þegar árið 1988 þegar þessi mikla íþróttahátíð var haldin í Seoul í Suður-Kóreu voru 8.500 smokkar sendir út og var það gert til að beina athyglinni keppendanna að áhættu á HIV-smiti.

Eftir Seoul-leikanna hefur verið hefð fyrir smokkadreifingum. Á ólympíuleikunum í Ríó í Brasilíu árið 2016 fóru 450.000 smokkar til þátttakenda. Þrátt fyrir allar þær takmarkanir sem giltu í Tókýó árið 2021 var samt 150.000 smokkum komið til íþróttamannanna en með því fororði að þeir ættu að taka smokkana með sér heim. 

ÁSKRIFT MEÐ 50% AFSLÆTTI Í EINN MÁNUÐ. FULLT VERÐ Í FRAMHALDINU EN ALLTAF HÆGT AÐ SEGJA UPP.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …