Samfélagsmiðlar

Arion með aukin veð í eignum Andra

Andri Már Ingólfsson flýtti útgáfu á fréttatilkynningu um breytingar á eignarhaldi Primera Travel Group í kjölfar fyrirspurnar frá Túrista. Ljóst að Arion banki hefur fengið bættar tryggingar fyrir því fé sem bankinn hefur lánað fyrirtækjum samstæðunnar.

Gjaldþrot Primera air hefur farið illa með fyrirtæki Andra Más Ingólfssonar.

„Það kemur fréttatilkynning á mánudaginn,“ sagði Andri Már Ingólfsson í svari við fyrirspurn sem Túrista sendi honum í morgun. Þar var beðið um skýringar á því að upplýsingum um eignarhald á ferðaskrifstofum hans á hinum Norðurlöndunum hefði verið breytt. Klukkustund eftir að fyrrnefnt svar barst frá Andra þá birti Túristi frétt sína um málið. Í millitíðinni hafði hins vegar almannatengill Andra komið fréttatilkynningu á fjölmiðla, þó ekki til Túrista, þar sem sagt var frá því að Travelco, nýtt eignarhaldsfélag, hefði keypt allar ferðaskrifstofur Primera Travel Group. Andri sendi sjálfur tilkynninguna á Túrista nokkru síðar en þá höfðu margir af stærstu netmiðlum landsins gert henni skil.

Svarið við spurningunni sem Túristi bar upp í morgun var þá að allur rekstur Primera Travel Group, sem er skráð á Íslandi og er í eigu Andra, hefur verið fluttur í danska dótturfélagið Primera Travel í Danmörku og það fyrirtæki endurnefnt Travelco Nordic. „Öll félögin eru færð undir það félag til að einfalda félagið og styrkja eigið fé þess eftir þessi miklu áföll,“ sagði í tilkynningunni. Var þar vísað til þess að í kjölfar gjaldþrots Primera Air hefðu ferðaskrifstofur samstæðunnar tapað háum fjárhæðum vegna fyrirframgreiddra flugferða og kaupa á nýjum flugsætum fyrir viðskiptavini sína.

Í tilkynningunni segir líka að hið nýja félag hafi tekið yfir skuldir Primera Travel Group við Arion banka. Í kjölfarið spurði Túristi hvað yrði um Primera Travel Group en svar við þeirri spurningu hefur ekki borist. Þess má geta að samkvæmt ársreikningi þessa fyrrum móðurfélags ferðaskrifstofanna og flugfélagsins þá tapaði það rúmum 700 milljónum í fyrra en hátt í 2 milljörðum í hittifyrra.

Sem fyrr segir þá kemur fram í tilkynningunni, sem Andri sendi út í flýti í dag, að nýja móðurfélagið myndi taka yfir skuldir við Arion banka. Bankinn hefur engu að síður nú þegar tapað töluverðum upphæðum á viðskiptum sínum við Primera Travel Group því daginn sem Primera air varð gjaldþrota sendi bankinn út tilkynningu um tap upp á allt að nærri 2 milljarða vegna viðskiptavinar. Þó nafn Primera air hafi þar ekki komið fram er enginn vafi á að þarna var átt við flugfélagið. Og samkvæmt heimildum Túrista þá hefur Arion banki nú fengið allsherjarveð í eignum Primera Travel Group, það er húseign Heimsferða, vörumerkjum Heimsferða og Terra Nova og lénum ferðaskrifstofanna. Eru veðin upp á annars vegar 190 milljónir danskra króna (um 3,4 milljarða kr.) og hins vegar 11 milljónir evra (1,5 milljarður). Samanlagt veð upp á rétt um 5 milljarða króna.

Þess má geta í lokin að ennþá hefur Túristi ekki fengið svar afhverju ábyrgð upp á 1,7 milljarð króna hvílir ekki lengur á Heimsferðum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …