Samfélagsmiðlar

Vilja ekki setja Play í loftið of snemma

Áætlanir forsvarsmanna Play hafa gengið út á að flugrekstur þess myndi hefjast nú í haust en forstjóri þess að félagið geti beðið fram á næsta vor.

Arnar Már Magnússon, forstjóri Play.

„COVID-19 hefur látið okkur aðeins draga andann og viljum við alls ekki fórna sterkri stöðu okkar með því að byrja of snemma. Við ætlum frekar að bíða átekta en félagið getur, eins og fram hefur komið, byrjað í haust eða jafnvel beðið fram á næsta vor ef COVID-19 leyfir ekki annað. Staða okkar gerir okkur kleyft að stjórna hvort það sé fyrr eða seinna. Við erum að meta frá degi til dags hvernig við högum þessu eins og aðrir “ segir Arnar Már Magnússon, forstjóri Play, aðspurður um fyrirætlanir félagsins .

Áform Play hafa hingað til gengið út á að hefja flugrekstur í haust en segja má að horfurnar í flug- og ferðageiranum hér á landi séu tvísýnni núna en þær voru fyrir nokkrum vikum síðan.

Til marks um það þá eru umsvif Icelandair í dag nokkru minni en stjórnendur þess gerðu ráð fyrir um miðjan júní þegar flugsamgöngur voru að hefjast á ný. Önnur bylgja kórónaveirunnar hefur svo aukið óvissuna enn frekar.

Það kom fram í máli Skúla Skúlasonar, stjórnarformanns Play, í Viðskiptablaðinu í júní að rekstur fyrirtækisins kostar um 30 til 50 milljónir króna á mánuði. Þar með má gera ráð fyrir að heildarkostnaður nú í vor og sumar hafi verið að lágmarki 150 milljónir króna.

Norski fluggreinandinn Hans Jørgen Elnæs lýsti því yfir hér á síðum Túrista í júlí að hann teldi of áhættusamt fyrir Play að fara í loftið nú í vetur. Máli sínu til stuðnings benti hann á að bókanir fram í tímann væru ennþá mjög takmarkaðar og eftirspurn eftir flugi væri óljós.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …