Play flutti 9.899 farþega í júlí en þetta var fyrsti heili mánuðurinn í starfsemi félagsins. Sætaframboðið félagsins nam hins vegar nærri tuttugu og fimm þúsund sætum samkvæmt talningu Túrista.
Og í byrjun júlí hafði Play selt um helming allra sæta sem í boði í þeim mánuði líkt og fram kom í viðtali Morgunblaðsins við Birgi Jónsson forstjóra Play þann 1. júlí sl.
Miðað við þau orð forstjórans þá hafa í byrjun mánaðar verið bókaðir töluvert fleiri en þeir tíu þúsund farþegar sem enduðu með að nýta sér ferðir félagsins í júlí. Og þá má áætla að ekki hafi margir farmiðar selst í júlí fyrir ferðir í þeim mánuði.
Sala til Íslendinga ekki öflug seinni hluta mánaðar
Beðinn um skýringar á þessari öfugu þróun mála þá segir Birgir, í svari til Túrista, að í lok júní hafi salan inn á sumarið verið mjög sterk og það hafi sannarlega litið vel út.
„Síðan kemur þessi nýja bylgja um miðjan mánuð og Íslendingar seinkuðu mikið af brottförum seinnipart júlí enda eru skilmálarnir settir upp til að leyfa það. Að sama skapi var salan til Íslendinga ekki mjög öflug seinni hluta júlí, fyrir ferðir innan mánaðarins, vegna óvissu í tengslum við Covid,“ segir Birgir.
Forstjórinn vísar jafnframt til þess að í tengslum við hlutafjárútboð Play hafi hann sagt að væntingar til sætanýtingar væru mjög hóflegar fyrstu mánuðina. Til að mynda verið horft til helmings nýtingar í júlí.
„Þetta endar í um 42 prósent nýtingu sem er ekki langt frà því sem ég sagði nokkrum vikum áður,“ útskýri Birgir og bendir á að framboðið hjá Play hafi verið lítið og því þurfi lítið til að sveifla hlutföllunum.
Bókanir taka við sér á ný
Sem fyrr segir þá seinkaði fjöldi farþega Play ferðum sínum í júlí og segir Birgir mikilvægt að hafa í huga að tekjurnar af þeim og hverfi ekki heldur færist bara til í tíma.
„Svona er þessi markaður þessa dagana. Þetta er ekkert sem við bjuggumst ekki við eða erum ekki tilbúin í þó vissulega væri betra ef faraldurinn væri alveg að baki. Salan hefur ekki kólnað mikið inn á síðsumarið og haustið. Svo erum við að sjá landann lifna við núna þegar jafnvægi er að komast á Covid umræðuna og áhrif litakóðunarinnar eru ekki mikil,“ segir Birgir.