Samfélagsmiðlar

Segir gjald Icelandair hafa verið hátt og hækki nú enn meira

Það verður margfaldur munur á eldsneytisálagi íslensku alþjóðaflugfélaganna frá mánaðamótum. Forstjóri Play segir gjaldið þar á bæ bygga á einföldum útreikningum. Hann á von á góðu ferðamannaári þrátt fyrir verðhækkanir á farmiðum.

„Við ætlum ekki að selja okkar vörur undir kostnaðarverði þó vissulega ætlum við alltaf að vera með þeim sem bjóða bestu verðin á markaðinum," segir Birgir Jónsson, forstjóri Play.

Play tók upp sérstakt eldsneytisálag í byrjun síðustu viku og nemur það á bilinu 1.300 til 2.200 krónum á hvern fluglegg. Hjá Icelandair hefur lengi tíðkast að eyrnamerkja hluta farmiðaverðsins sem eldsneytisgjald og í dag getur það farið upp í 8.100 krónur í flugi frá Íslandi. Um mánaðamótin hækkar það um allt að helming.

Spurður út í þennan margfalda mun á eldsneytisálagi keppinautanna tveggja þá segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, að gjaldið hjá Icelandair hafi verið hátt og hækki nú enn meira.

„Við erum svo sem ekki að hugsa þetta sem samkeppnisatriði þó að við vitum vissulega að Icelandair og fleiri hafi haft þetta gjald í langan tíma. Ég veit ekki hvernig Icelandair reiknar sitt álag út eða hvað er lagt til grundvallar þessu háa gjaldi. Fyrir okkur er þetta einfalt dæmi. Við teljum að þessar hækkanir tengdar stríðinu í Úkraínu muni auka kostnaðinn okkar um 10 milljónir bandaríkjadollara (um 1,3 milljarðar kr.) á þessu ári. Við munum fljúga með um eina milljón farþega á árinu og því er gjaldið reiknað miðað við það og aðrar slíkar forsendur nú í lok mars,“ útskýrir Birgir.

Í álíka stöðu varðandi hækkanir

Hann bætir því við að flugfélagið þurfi að vinna olíuverðshækkunina til baka og sýni viðskiptavinum sínum hvernig.

„Við höfum raunar ekki mætt neinu nema skilningi á þessu gjaldi því allir sjá hvað er að gerast í heiminum. Langflest flugfélög eru nær óvarin [gagnvart hækkunum á eldsneytisverði, innskot. blm.]) frá og með byrjun sumars og því eru almennar verðhækkanir óhjákvæmilegar. Við ætlum ekki að selja okkar vörur undir kostnaðarverði þó vissulega ætlum við alltaf að vera með þeim sem bjóða bestu verðin á markaðinum.“

Búi sig undir gott ferðamannaár

Forstjóri Play á ekki von á því að hækkanir á fargjöldum hafi áhrif á komur erlendra ferðamanna til landsins eða eftirspurn eftir flugmiðum yfirleitt.

„Bókunarstaðan er það sterk og eftirspurnin mikil. Smávægileg hækkun eins og við erum að ræða um vegna eldsneytis breytir litlu. Ísland ætti að búa sig undir gott ferðamannaár og ég held að þær spár sem birtar hafa verið um 1,3 milljónir ferðamanna séu afar varfærnar miðað við bókunarstöðu,“ segir Birgir,

Hann bendir jafnframt á að öfugt við hótelin, þar sem gestir geta afbókað með stuttum fyrirvara, þá séu flugfélögin með „harðar bókanir” og því öruggari með að þeir sem panta farmiða þessa dagana skili sér.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …