Samfélagsmiðlar

Hugnast ekki frekari skattlagning á ferðamenn

Hátt verðlag fælir ferðamenn frá Mið-Evrópu frá Íslandi segir Bjarnheiður Hallsdóttir, nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Hún kallar eftir heildstæðri stefnu fyrir atvinnugreinina í stað skattahækkana.

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.

Verð á þjónustu hefur hækkað mikið á síðustu þremur árum með sterkari krónu og launahækkunum og er nú svo komið að rík ástæða er til að hafa áhyggjur af þróuninni enda hefur verðlag bein áhrif á eftirspurn. Þetta kom fram í máli Bjarnheiðar Hallsdóttur á Morgunvakt Rás 1. Hún sagði Mið-Evrópubúa þá gesti sem í gegnum árin hefðu gefið okkur mest enda dveldu þeir lengi í landinu, þekktu það vel og færu víða um. Ferðahegðun Bandaríkjamanna og Asíubúa, sem fjölgað hefði að undanförnu, væri öðru vísi og ekki jafn ábatasöm.

Bjarnheiðar sagði það skoðun sína að ekki beri að skattleggja ferðamenn meira en þegar er gert og nefndi að árið 2015 voru nettótekjur ríkis og sveitarfélaga vegna ferðamanna um 65 milljarðar króna. Þá er hún mótfallin hugmyndum um náttúrupassa og gjaldtöku við náttúruperlur. En eins og áður hefur komið fram þá gerir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar ráð fyrir að nýr skattur á ferðamenn skili ríkinu 2,5 milljörðum á þarnæsta ári. Ekki liggur hins vegar fyrir hvers kyns skattur þetta verður.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …