Útbreiðsla Airbnb um heiminn hefur verið hröð síðustu ár og bandaríska fyrirtækið miðlar nú gistikostum í 191 landi. Hvergi hafa heimamenn þó eins mikið upp úr leigustarfseminni og á Íslandi. Í fyrra námu tekjur íslensku leigusalanna að jafnaði 1.211.679 kr. en meðaltaltekjur í um 80 löndum voru rétt um 275 þúsund krónur samkvæmt samantekt Túrista sem byggir á upplýsingum sem sækja má á heimasíðu Airbnb. Þess ber að geta að í Airbnb talar ekki um meðaltekjur heldur „Typical host income“ sem þýða mætti sem tekjur dæmigerðs gestgjafa.
Næst tekjuhæstir eru Japanir en svo koma Bandaríkjamenn. Sú Evrópuþjóð sem kemur næst á eftir Íslendingum eru Maltverjar en leigutekjur þeirra frá Airbnb eru um helmingi lægri en gerist og gengur hér á landi. Á hinum Norðurlöndunum eru árstekjur leigusala vegna skammtímaleigu í gegnum bandaríska fyrirtækið í öllum tilvikum innan við 300 þúsund krónur.
Að jafnaði leigðu Íslendingarnar út fasteignir sínar í 62 daga á ári en samkvæmt núgildandi reglum um skammtímaleigu má að hámarki leigja út fasteign í skammtímaleigu í 90 daga á ári og tekjurnar mega ekki fara yfir 2 milljónir.