Samfélagsmiðlar

Heimsins bestu gistiheimili

Lissabon er höfuðvígi góðra gistiheimila samkvæmt notendum bókunarsíðunnar Hostelworld. Þrír gististaðir í borginni skipa efstu sætin á lista netsíðunnar yfir bestu gistiheimilin á síðasta ári. Athygli vekur að öll farfuglaheimilin sem komast á lista þeirra tíu bestu eru í Evrópu.

Í átta ár hefur Hostelworld verðlaunað þau gistihús sem hlotið hafa jákvæustu umsögn viðskiptavina síðunnar. Annað árið í röð er sigurvegarinn Traveller´s House í Lissabon í höfuðborg Portúgals. Þeir sem hafa eytt nóttinni þar hafa varla neitt slæmt um aðstöðuna eða þjónustuna að segja og þess vegna er það heimsins besta gisthús.

Svona lítur topp tíu listi Hostelworld út en hann er byggður á hátt í níu hundruð þúsund umsögnum:

  1. Traveller´s House, Lissabon, Portúgal: Ódýrustu herbergin eru á 20 evrur en tveggja manna herbergi eru á 35 evrur. Það er einnig hægt að leigja íbúð í sama húsi.

  2. Rossio Hostel, Lissabon, Portúgal: Vel staðsett í Baixa hverfinu líkt og Traveller´s House. Aðeins ódýrari kostur því tveggja manna herbergið er á 32 evrur.

  3. Living Lounge, Lissabon, Portúgal: Smekklegt gistiheimili í nálægð við helstu samgönguæðar borgarinnar.

  4. Academy hostel, Flórens, Ítalíu: Þetta mun vera snyrtilegasta gistiheimilið á vef Hostelworld.

  5. Carpe Nogtem, Búdapest, Ungverjalandi: Hentar vel fyrir hópa því það eru engin eins eða tveggja manna herbergi.

  6. The Riverhouse backpackers, Cardiff, Wales: Ódýr gisting í nágrenni við aðalíþróttaleikvanginn í Wales.

  7. Lisbon Lounge house, Lissabon, Portúgal: Þetta gistiheimili er rekið af sömu aðilum og eiga Living lounge sem er í sæti númer þrjú.

  8. Greg & Tom, Kráká, Póllandi: Tvö gistiheimili eru rekin undir þessu nafni í Kráká.

  9. The Naughty Squirrel, Ríga, Lettlandi: Tveggja manna herbergi á 20 evrur hlýtur að teljast mjög ódýrari.

  10. Lisboa Central Hostel, Lissabon, Portúgal: Herbergi fyrir tvo, fjóra, sex eða tíu miðsvæðis í Lissabon.

Þeir sem kjósa ódýrari gistingu og er alveg sama þó deila þurfi baðherbergi með öðrum gestum ættu því að kynna sér heimasíðu Hostelworld. Flest gistihúsin á listanum gera út á yngri ferðalanga og bjóða upp á fría nettengingu og sjónvarpsaðstöðu og ódýran morgunmat. Staðsetningin er líka oftar en ekki mjög góð.

NÝTT EFNI: Vegvísir fyrir túrista í Vancouver

Share |

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …