Samfélagsmiðlar

Hvað kostar að fljúga til Rómar næstu 2 mánuði?

colosseum rom

Annað sumarið í röð eru í boði áætlunarferðir héðan til höfuðborgar Ítalíu. Hér sérðu hvað flugið kostar alla þá daga sem eftir lifir sumars. Annað sumarið í röð eru í boði áætlunarferðir hérðan til höfuðborgar Ítalíu. Hér má sjá hvað flugið kostar alla þá daga sem eftir lifa sumars. 
Þangað til í fyrra þá voru flugsamgöngur milli Íslands og Ítalíu mjög litlar en svo hófu WOW air og Vueling að fljúga frá Keflavíkurflugvelli og til Rómar yfir sumarmánuðina. Þessi tvö lággjaldaflugfélag hafa haldið uppteknum hætti nú í sumar og bjóða upp upp á þessa flugleið fram í miðjan september.

Heimferðin oftast dýrari

Eins og staðan er í dag þá á eftir að fljúga 26 áætlunarferðir til Rómar frá Keflavíkurfluvelli í júlí, ágúst og september og samkvæmt verðkönnun Túrista þá kosta ódýrustu farmiðarnir út á bilinu 12 til 15 þúsund krónur. Hins vegar eru heimflugin oftar mun dýrari eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Munurinn getur verið allt að þrefaldur í kringum sömu dagana. 
Hafa ber í huga að bæði flugfélög rukka farþega fyrir innritaðan farangur og WOW einnig fyrir þyngri handfarangur.

Tilboð á gistingu

Þeir sem ekki hafa í hús að vernda í Róm geta fundið tilboð á gistingu þar í borg á heimasíðum Booking.com og Hotels.com og hér má svo gera verðsamanburð á nær öllum hótelum borgarinnar.

Farmiðar til RómarVerðFarmiðar frá RómVerð
19.júlí21.999 kr. með WOW19.júlí22.222 kr. með Vueling
20.júlí22.222 kr. með Vueling
19.júlí24.999 kr. með WOW
24.júlí19.529 kr. með Vueling
23.júlí 30.304 kr. með Vueling
26.júlí14.999 kr. með WOW26.júlí22.222 kr. með Vueling
27.júlí16.834 kr. með Vueling
26.júlí25.999 kr. með WOW
31.júlí14.141 kr. með Vueling30.júlí53.201 kr. með Vueling
2.ágúst14.141 kr. með Vueling1.ágúst29.499 kr. með Vueling
2.ágúst19.999 kr. með WOW2.ágúst39.999 kr. með WOW
5.ágúst14.141 kr. með Vueling4.ágúst35.499 kr. með Vueling
9.ágúst14.999 kr. með WOW8.ágúst 35.692 kr. með Vueling 
9.ágúst16.835 kr. með Vueling9.ágúst46.999 kr. með WOW
12.ágúst24.916 kr. með Vueling11.ágúst32.998 kr. með Vueling
16.ágúst19.999 kr. með WOW15.ágúst 30.304 kr. með Vueling 
16.ágúst24.916 kr. með Vueling16.ágúst 36.999 kr. með WOW
19.ágúst30.304 kr. með Vueling18.ágúst 35.692 kr. með Vueling 
23.ágúst24.999 kr. með WOW22.ágúst 52.528 kr. með Vueling
23.ágúst24.916 kr. með Vueling23.ágúst 17.999 kr. með WOW 
26.ágúst32.998 kr. með Vueling25.ágúst 22.222 kr. með Vueling 
30.ágúst25.999 kr. með WOW29.ágúst 16.835 kr. með Vueling 
30.ágúst24.916 kr. með Vueling30.ágúst 12.999 kr. með WOW 
2.september24.916 kr. með Vueling5.september 16.835 með Vueling 
6.september21.999 kr. með WOW6.september21.999 kr. með WOW 
6.september19.529 kr. með Vueling8.september 14.141 kr. með Vueling
9.september14.141 kr. með Vueling13.september 19.529 kr. með Vueling 
13.september12.999 kr. með WOW13.september 14.999 kr. með WOW 
13.september12.121 kr. með Vueling  
Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …