Hin ýmsu ferðarit birta reglulega topplista í hinu og þessu sem viðkemur ferðalögum. Og í vikunni birti breski armur Conde Nast Traveller ferðatímaritsins niðurstöður lesendakönnunar ársins. Þar var meðal annars spurt hvaða áfangastaðir heilla mest og hér er svarið.
Ferðamannaborgir ársins að mati lesenda Conde Nast Traveller.
- Charleston í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum
- Merida í Yucatan héraði í Mexíkó
- Dresen í austurhluta Þýskalands
- Tókýó höfuðborg Japan
- Kyoto fyrrum höfuðborg Japan
- Santa Fe í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum
- Singapore
- Quebec borg í frönskumælandi hluta Kanada
- Salzburg í Austurríki, fæðingarborg Mozart
- Alexandria í Virginu, skammt frá Washington borg
- Puerto Vallarta, strandbær í Mexíkó
- Vín höfuðborg Austurríkis
- Bergen í Noregi
- Flórens á Ítalíu
- Osaka í Japan
- Kaupmannahöfn
- Amsterdam
- Barcelona
- Taipei í Tævan
- Sydney í Ástralíu