Samfélagsmiðlar

Hefur litlar áhyggjur af lánum bankans til ferðaþjónustunnar

Marínó Örn Tryggvason, bankastjóri Kviku, telur að ferðaþjónustan verði mikilvægur hluti viðspyrnunnar og segir ekki lokað fyrir frekari lánveitingar til greinarinnar. Bankinn flokkar vinnu sína fyrir Icelandair síðastliðið haust sem samfélagsverkefni í nýjum ársreikningi.

Marínó Örn Tryggvason, bankastjóri Kviku.

Heildarlán Kviku til ferðaþjónustufyrirtækja námu 2,1 milljarði króna um síðustu áramót. Til samanburðar var bókfært virði lána Íslandbanka og Landsbanka, til ferðaþjónustufyrirtækja og flugfélaga, nærri eitt hundrað milljarðar kr, hjá hvorum banka fyrir sig. Útistandandi lán Arion banka til ferðaþjónustufyrirtækja námu 73 milljörðum kr.

Hlutfall útlána til ferðaþjónustu í lánabók Kviku var 6,5 prósent sem er lægra en hjá stóru bönkunum þremur.

Af lánum Kviku til atvinnugreinarinnar var rúmur helmingur til hótela og íbúðagistingar samkvæmt sundurliðun á lánum sem finna má í uppgjöri bankans fyrir síðasta ár.

„Lán tengd ferðaþjónustu hafa verið lítill hluti af lánabók Kviku og þess vegna ekki flokkuð sérstaklega fram til þessa í uppgjörum bankans. Ástæðan fyrir því að það var gert núna er áhugi markaðsaðila á því að sjá hver áhætta okkar er af lánum til ferðaþjónustunnar,” segir Marínó Örn Tryggvason, bankastjóri Kviku, í samtali við Túrista. Hann bendir á að áhættan af þessum lánum sé lítil.

„Þetta eru næstum allt eignatryggð lán þar sem veðhlutfallið er undir sextíu prósent. Ég hef því litlar áhyggjur af þessum lánum.”

Marínó segir ekki útilokað að lán Kviku til ferðaþjónustunnar aukist þrátt fyrir ástandið sem nú ríkir vegna heimsfaraldursins.

„Ég tel að ferðaþjónustan verði mikilvægur hluti af viðspyrnunni og við viljum taka þátt í henni. Það er því ekki lokað fyrir frekari lánveitingar til ferðaþjónustunnar. Verkefnin verða einfaldlega metin hvert fyrir sig,” útskýrir Marínó.

Kvika banki kom að hlutafjárútboði Icelandair síðastliðið haust sem ráðgjafi flugfélagsins en bankinn þáði enga þóknun fyrir þá vinnu. Verkefnið fyrir Icelandair er því flokkað sem samfélagsverkefni í árskýrslu bankans á sama hátt og framlag Kviku við Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

„Við fengum ekki krónu fyrir okkar vinnu við útboðið og það stóð heldur aldrei til,” svarar Marínó aðspurður um þetta þessa samfélagsvinnu bankans fyrir Icelandair.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …