Samfélagsmiðlar

Hluthafar Eldeyjar fá enn minni hlut

Eignahlutföllin í samruna Kynnisferða og Eldeyjar hafa tekið breytingum að undanförnu. Sameiningin er ennþá til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu en eitt af fyrirtækjum Eldeyjar hefur flutt heimilisfang sitt í húsnæði Kynnisferða.

Fjárfestingasjóðurinn Eldey hefur frá árinu 2015 fjár­fest í fyrir­tækj­um sem sérhæfa sig í afþreyingu fyrir ferðamenn. Sjóðurinn var rekinn með tapi á árunum fyrir Covid-19 en í vor var undirritað samkomulag um sameiningu Kynnisferða og hluta af eignasafni Eldeyjar.

Stærstu eigendur Eldeyjar eru lífeyrissjóðir og þeirra stærstur er Birta með um fjórðungs hlut. Í stjórn sjóðsins situr meðal annars forstjóri Isavia og stjórnarformaður Íslandsstofu.

Í tengslum við samrunann við Kynnisferðir var hlutafé í Eldeyju aukið um um hálfan milljarð króna. Upphaflega var ætlunin að kalla eftir þeirri hlutafjáraukningu sem samþykkt var á aðalfundi Eldeyjar í apríl 2019 eða um 2,3 milljörðum króna. Þá stóð líka til að eignarhlutar Eldeyjar í Saga Travel og Norðursiglingu yrðu hluti af sameinuðu félagi. Ekkert varð úr því þar sem Saga Travel fór í þrot og áfram var unnið var að fjárhagslegri endurskipulagningu Norðursiglingar.

Fá minna en þriðjung í nýja félaginu

Eftir þessar breytingar fór eignarhlutur Eldeyjar, í sameinuðu félagi, í 35 prósent. Síðastliðið vor hafði hluthöfum Eldeyjar aftur á móti verið kynnt að þeir fengju 51,4 prósent í sameinuðu félagi en forsenda fyrir því var að hlutfé sjóðsins yrði aukið um fyrrnefnda 2,3 milljarða króna.

Og núna er eignarhlutur Eldeyjar kominn ennþá neðar eða í 27,5 prósent. Lífeyrissjóðurinn Birta og meðeigendur Eldeyjar, í tveimur ferðaþjónustufyrirtækjum, skipta svo með sér 4,65 prósent hlut til viðbótar. Þetta kemur fram í umsagnarbeiðni sem Samkeppniseftirlitið hefur sent á ýmis ferðaþjónustufyrirtæki og Túristi hefur séð.

Þar með fá hluthafar Kynnisferða 67,85 prósent hlut í nýju sameiginlegu fyrirtæki í stað 65 prósenta.

Íslenskir fjallaleiðsögumenn fluttir í Klettagarða

Samruni Kynnisferða og Eldeyjar er ennþá til umfjöllunar hjá Samkeppniseftirlitinu en þrátt fyrir það hefur Arcanum – Íslenskir fjallaleiðsögmenn, eitt fyrirtækjanna sem tilheyra Eldey, flutt heimilisfang sitt að Klettagörðum 12 en þar eru Kynnisferðir eru til húsa. Samkvæmt svari frá Íslandssjóðum er um að ræða hefðbundinn húsaleigusamning.

Líkt og Túristi fjallaði um nýverið eru ekki allir hluthafar Eldeyjar tilbúnir til að samþykkja fyrirhugaðan samruna.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …