Fyrir sex árum síðan hóf Icelandair að fljúga til bandarísku borgarinnar Portland í Oregon fylki en félagið gerði svo hlé á ferðum sínum þangað haustið 2019. Ástæðan var áframhaldandi kyrrsetning MAX þotanna en ætlunin var að taka upp þráðinn á ný sumarið 2020. Af því varð þó ekki vegna heimsfaraldursins.
Upphaflega sumaráætlun Icelandair fyrir komandi sumar gerði svo ekki rá fyrir neinum ferðum til Portland.
Þeirri ákvörðun var snúið við því í mars síðastliðnum hóf félagið á ný sölu á flugi til borgarinnar frá og með1. júlí. Þá var ætlunin að fljúga þrisvar sinnum til viku til Portland en nú hefur fjórðu ferðinni verið bætt við.
Þar með munu Boeing 757 þotur Icelandair fljúga frá Íslandi til Portland alla mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga frá þarnæstu mánaðamótum og fram í lok október.