Samfélagsmiðlar

Íslensku félögin sitthvorum megin við þau bandarísku

Verðkönnun á fargjöldum flugfélaganna fjögurra sem fljúga héðan til New York.

Frá New York.

Þeir sem bóka í dag vikuferð til New York í júlí mega gera ráð fyrir að borga að jafnaði 62 þúsund krónur fyrir flugmiða út og heim aftur. Verðlagið er þó ólíkt hjá þeim fjórum flugfélögum sem ætla að halda úti daglegum ferðum milli Keflavíkurflugvallar og heimsborgarinnar í sumar.

Í þeim flokki er Icelandair dýrast því hinir svokölluðu Economy Light miðar félagsins kosta að jafnaði 70.556 krónur í júlí. Hjá Delta eru ódýrustu sætin á almennu farrými fjögur þúsund krónum ódýrari eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.

Sætin á fremsta farrými í Íslandsflugi United seljast vel í sumar eins og Túristi hefur áður fjallað um. Þeir sem sætta sig við að sitja aftar í þotum félagsins borga hins vegar að jafnaði rúmlega 62 þúsund krónur fyrir miðann.

Hjá Play sitja allir á sama farrými og þar eru sætin í dag töluvert ódýrari en hjá keppinautunum þremur. Meðalverðið hjá félaginu, að viðbættri handfarangursheimild, er nefnilega 49.352 krónur sem er um þrjátíu prósent lægra verð hjá Icelandair.

Í könnun Túrista var leitað eftir ódýrasta farinu hjá hverju félagi fyrir sig, hvern einasta dag í júlí. Reiknað var með að hver ferð væri ein vika. Handfarangursheimild var bætt við lægsta verðið hjá Play svo að þjónustan væri álíka hjá öllum fjórum félögum.

Farþegar Delta og United þurfa hins vegar ekki að borga fyrir neinar veitingar í flugferðinni, öfugt við það sem er hjá íslensku félögum. Hjá Icelandair þarf reyndar ekki að borga fyrir óáfenga drykki og þar fá yngstu farþegarnir mat.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …