Samfélagsmiðlar

Keahótelin réttum megin við núllið

Hótelkeðjan tók lán upp á nærri hálfan milljarð í fyrra en hluti upphæðarinnar er með ríkisábyrgð. Landsbankinn er stærsti hluthafinn.

Keahótelin reka meðal annars Hótel KEA og Hótel Borg. Húsnæði þess fyrrnefnda er í eigu Reginn en Reitir eiga hótelbygginguna við Austurvöll.

Heimsfaraldurinn hafði skiljanlega mjög neikvæð áhrif á rekstur hótela og þegar árið 2020 var gert upp hjá Keahótelunum nam rekstrartapið 822 milljónum króna. Í lok ársins varð móðurfélag hótelkeðjunnar gjaldþrota og Landsbankinn eignaðist 35 prósent hlut í þessu þriðja stærsta hótelfyrirtæki landsins. Gömlu eigendurnir héldu eftir 65 prósentum.

Afkoma fyrirtækisins batnaði verulega á síðasta ári því samkvæmt nýju uppgjöri samstæðunnar þá nam rekstrarhagnaðurinn 54 milljónum króna í fyrra. Tekjurnar nærri því þrefölduðust á árinu og fóru upp í 2,9 milljarða kr. Í heildina tekið var hagnaðurinn hjá Keahótelunum á síðasta ári 1,2 milljónir kr. í samanburði við 497 milljón króna tap árið 2020.

Í uppgjöri Keahótelanna kemur fram að gefin voru út tryggingabréf upp á 280 milljónir króna til tryggingar á skuldum við Landsbankann í fyrra. Ennfremur var leigusölum veitt bankaábyrgð til tryggingar á leigugreiðslum upp á 403 milljónir króna en fasteignafélögin Reitir, Reginn og Kaldalón eiga stóran hluta af þeim hótelbyggingum sem Keahótelin leigja. Síðastnefnda félagið keypti í fyrra tvær byggingar sem hótelkeðjan leigir en meðal seljenda voru hluthafar í Keahótelunum sem fengu í staðinn hlut í Kaldalóni.

Keahótelin tóku í fyrra lán upp á rúmlega hálfan milljarð króna. Sú lántaka er að hluta til með ríkisábyrgð í samræmi við þann stuðning sem Alþingi samþykkti að veita ferðaþjónustufyrirtækjum vegna tekjufalls sem rekja mátti til heimsfaraldursins.

Sem fyrr segir á Landsbankinn 35 prósent hlut í Keahótelunum og þar með er bankinn stærsti einstaki hluthafinn. Bankinn var líka helsti lánadrottinn gamla móðurfélagsins en lýstar kröfur í þrotabú þess námu 3,8 milljörðum króna en engar eignir fundust í búinu.

Bandaríska fjárfestingasjóðnum Pt Capital er næststærsti hluthafi Keahótelanna með 32,5 prósent hlut. Þetta er sami sjóður og seldi nýverið um 40 prósent í símafyrirtækinu Nova fyrir tæpa átta milljarða króna.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …