Samfélagsmiðlar

Ferðamenn sýna útflutningi á bjór áhuga

Aukin straumur túrista til landsins hefur ekki aðeins jákvæð áhrif á afkomu ferðaþjónustufyrirtækja.

Það hefur orðið umtalsverð aukning í sölu á Gull Lite eftir að bjórinn varð fáanlegur á krana segir Gunnar B. Sigurgeirsson, aðstoðarforstjóri Ölgerðarinnar.

Stjórnendur Ölgerðarinnar hafa hækkað spá sína um hagnað á yfirstandandi fjárhagsári um allt að hálfan milljarð króna og gera þeir ráð fyrir að svokölluð EBITDA afkoma verði á bilinu 4,1 til 4,4 milljarðar króna. Í kauphallartilkynningu segir að rekja megi breytinguna fyrst og fremst til tveggja þátta.

Annars vegar hefur sala á vörum fyrirtækisins á hótelum og veitingastöðum aukist, ekki síst vegna umtalsverðrar fjölgunar ferðamanna. Hins vegar er hlutdeild Ölgerðarinnar í bjórsölu hjá ÁTVR stærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Aðspurður segir Gunnar B. Sigurgeirsson, aðstoðarforstjóri Ölgerðarinnar, að aukning í sölu á veitingahúsamarkaði og fjölgun ferðamanna vegi þyngra endurskoðun á afkomu en meiri sala í ÁTVR. Bendir hann á að það hafi ríkt deyfð yfir fyrrnefnda markaðnum í fyrra vegna Covid-19 en aukning á veitingahúsamarkaði sé einnig tilkomin vegna aukinnar hlutdeildar.

„Við sjáum verulega aukningu í fjölda viðskiptavina og það er greinilegt að vöruflóran okkar og þjónustustig er að falla í kramið á markaðnum,“ bætir Gunnar við.

Spurður hvort einhverjar tegundir af bjór seljist betur núna en áður þá segir Gunnar að lágkolvetnabjórinn Gull Lite hafi selst gríðarlega vel eftir að hann varð fáanlegur á veitingastöðum um land allt og meðal annars á krana. Og til marks um hve þessi tegund hefur fallið í kramið þá hefur Ölgerðin fengið fyrirspurnir frá áhugasömum túristum sem eru spenntir fyrir útflutningi á Gull Lite.

Gunnar bendir jafnframt á að almennt hafi eftirspurn eftir íslenskum vörumerkjum aukist verulega enda vilji erlendir ferðamenn gjarnan prófa innlendan bjór. Ölgerðin selur veitingahúsum þó ekki eingöngu öl því fyrirtækið er einnig með fleiri áfengistegundir á boðstólum, gosdrykki, kaffi og fleira.

Það er óhætt að fullyrða að það eru fleiri en stjórnendur Ölgerðarinnar sem finna fyrir auknum umsvifum á íslenskum matsölustöðum, börum og kaffihúsum. Því líkt og fram kom í nýrri samantekt Túrista þá tvöfaldaðist erlenda kortaveltan í veitingageiranum í sumar og hefur hún ekki áður verið svo mikil í krónum talið. Aukningin frá sumrinu 2019 er töluvert umfram almennar verðlagshækkanir.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …