Samfélagsmiðlar

9 af hverjum 10 hótelherbergjum bókuð

Hið nýja Iceland Parliament hótel við Austurvöll er eitt af þeim hótelum sem Berjaya Iceland Hotels reka í Reykjavík.

Nú hefur verkfall Eflingar hjá Íslandshótelunum staðið yfir í viku og dag leggja Eflingarfélagar niður störf á Edition hótelinu við Hörpu og Berjaya Iceland Hotels, áður Icelandairhótelunum.

Þar með nær verkfallið til fimmtán hótela í Reykjavík og fjórtán önnur gætu bæst við í lok mánaðar því nú stendur yfir atkvæðagreiðsla meðal félagsfólks stéttarfélagsins um verkföll á Keahótelunum og Centerhótelunum.

Febrúar er vanalega annasamur tími í ferðaþjónustunni á höfuðborgarsvæðinu og miðað við framboð á flugi til Keflavíkurflugvallar þá má búast við um 150 þúsund erlendum hótelgestum í Reykjavík í febrúar líkt og fram kom í samantekt Túrista.

Og til marks um góða bókunarstöðu þá hafði RÚV það eftir Hildi Ómarsdóttur, aðstoðarframkvæmdastjóra Berjaya Iceland Hotels, að þar væru níu af hverjum tíu herbergjum bókuð þessa dagana. Hótelkeðjan er með rúmlega eitt þúsund herbergi á sínum snærum í Reykjavík og má búast við að þrif á herbergjunum fari úr skorðum í verkfallinu að sögn Hildar.

Samkvæmt því sem Túristi kemst næst er ekki útlit fyrir að loka verði hótelum á höfuðborgarsvæðinu í þessari viku en ástandið gæti orðið erfitt frá og með helginni.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …