Samfélagsmiðlar

Suðurland tók við hótelgestum úr höfuðborginni

Hlutdeild landshluta á hótelmarkaðnum breyttist í febrúar. Áfram eru Bretar fjölmennastir á hótelunum í ársbyrjun.

Ferðamenn á Suðurlandi í góubyrjun

Kjaradeila Samtaka atvinnulífsins og Eflingar setti svip á hótelmarkaðinn í febrúar enda þurfti að loka eða draga úr þjónustu á 15 af stærstu hótelum höfuðborgarinnar. Engu að síður voru gistinæturnar á hótelunum í Reykjavík ögn fleiri en í febrúar 2020.

Sá mánuður var í raun hefðbundinn þó umræðan um Covid-19 hafi vissulega magnast dag frá degi. Það var svo í byrjun mars 2020 sem landamæri lokuðust.

Í heildina voru gistinætur á reykvískum hótelum 224 þúsund í febrúar síðastliðnum eða 2 þúsund fleiri en í febrúar þremur árum fyrr. Á landsvísu fjölgaði hótelnóttunum hins vegar umtalsvert eða úr 335 þúsundum, í febrúar 2020, í 372 þúsund.

Hlutdeild höfuðborgarinnar á hótelmarkaðnum lækkaði þar með úr 66 prósenum niður í 60 prósent. Vægi annarra landshluta hélst óbreytt að Suðurlandi undanskildu því þar hækkaði hún úr 17 prósentum í 21 prósent. Það er vísbending um að gestir sem áttu bókað á hótelum í Reykjavík hafi sótt í gistingu á Suðurlandi vegna verkfalla.

Þetta sést líka vel þegar horft til erlendra gistinótta því þeim fækkaði í febrúar í Reykjavík en fjölgaði um fjórðung á Suðurlandi.

Sem fyrr eru Bretar fjölmennastir á hótelunum hér á landi í byrjun árs og voru gistinætur þeirra 14 prósent fleiri en í febrúar 2020. Þar á eftir koma Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Frakkar en litlar sveiflur voru í fjölda gistinátta frá þessum þjóðum en aftur á móti varð mikil aukning hjá Hollendingum, Ítölum, Svisslendingum og Austurríkismönnum eins og sjá má hér fyrir neðan.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …