Samfélagsmiðlar

Ennþá bið eftir Andra Má og Icelandair

Uppfært: Tveimur klukkustundum eftir birtingu þessarar greinar þá sendi Icelandair frá sér tilkynningu þar sem fram kom að jóladagskrá félagsins væri tilbúin. Og á heimasíðu Aventura eru núna hægt að bóka ferðir til Spánar næsta sumar. Í bókunarferlinu kemur þó ekki fram hvaða flugfélag mun fljúga með farþegana á áfangastað.

Andri Már Ingólfsson, eigandi ferðaskrifstofunnar Aventura, boðaði síðastliðinn mánudag „ótrú­lega hag­kvæm“ fargjöld til fjögurra áfangastaða á Spáni næsta sumar. Sala á farmiðunum átti að hefjast í síðustu viku samkvæmt frétt Mbl.is en ennþá eru engir farmiðar komnir í sölu á heimasíðu Aventura.

Andri Már vildi ekki upplýsa um heiti danska flugfélagsins sem flytja á farþega hans til Spánar þegar Túristi spurðist fyrir um málið.

Af lýsingum að dæma þá er um að ræða flugfélagið Great Dane frá Álaborg. Það félag hefur sinnt flugi fyrir dönsku ferðaskrifstofuna Bravo Tours en sú var einmitt í eigu Primera Travel Group sem Andri Már átti þar til að Arion banki leysti samsteypuna til sín.

Jóladagskrá Icelandair væntanleg

Þó ekki verði gerðar tilslakanir á landamærunum þá má gera ráð fyrir að umferðin um Keflavíkurflugvöll þyngist um miðjan desember í ljósi þess að um 45 þúsund Íslendingar búa í útlöndum. Hin tímabundna flugáætlun Icelandair nær hins vegar aðeins til 29. nóvember en til stóð að birta jóladagskrá flugfélagsins í síðustu viku líkt og Túristi hafði eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group.

Ennþá er þessi áætlun fyrir hátíðarnar ekki komin á heimasíðu Icelandair. Þar er þó hægt að bóka flug til allra áfangastaða félagsins næstu vikur og mánuði en þá ber að hafa í huga að félagið hefur fellt niður stóran hluta af ferðum sínum með aðeins tveggja sólarhringa fyrirvara. Félagið skuldbindur sig þó til að koma farþegunum á áfangastað.

Icelandair kemur Aventura á flug

Þess má svo geta að Aventura efnir til jólaferðar til Alicante í ár og hefur leigt flugvél af Icelandair í þá útgerð. Verður þetta fyrsta leiguflugið sem Aventura stendur fyrir frá því að ferðaskrifstofan tók til starfa.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …