Steinn Logi Björnsson, fyrrum framkvæmdastjóri hjá Icelandair, ætlar að sækjast eftir sæti í stjórn Icelandair á aðalfundi flugfélagsins sem fram fer í byrjun mars líkt og Túristi greindi frá í morgun.
Pálmi Haraldsson, einn stærsti hluthafinn í Icelandair, lýsir yfir stuðningi sínum við Stein Loga.
„Ég lagði það til á fundi mínum með tilnefningarnefnd Icelandair fyrr í vetur að Steinn Logi Björnsson yrði einn þeirra fimm sem tæki sæti í stjórn félagsins eftir næsta aðalfund. Ég tel að hann búa yfir yfirburðaþekkingu á fluggeiranum og reynslu af starfsemi Icelandair. Það væri því mikill akkur í því fyrir fyrirtækið að fá hann að borðinu og sérstaklega núna á þessum óvenjulegu tímum,“ segir Pálmi Haraldsson í samtali við Túrista.
Tilnefningarnefndin leggur hins vegar til að þau fimm sem mynda stjórn Icelandair í dag verði endurkjörinn.
Í gegnum félög sín fer Pálmi fyrir um tvö prósent hlut í Icelandair samsteypunni og hann segir tímabært að gera breytingar á stjórn félagsins.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um hvernig ég mun greiða atkvæði á aðalfundinum og mun skora á aðra hluthafa að kjósa frambjóðendur með reynslu í stað þess að standa vörð um völd útvaldra,“ bætir Pálmi við.