Niceair á Akureyri hefur bætt bresku borginni Manchester við vetraráætlun sína. Flogið verður á mánudags- og föstudagsmorgnum frá og með byrjun október. Um leið færast ferðir félagins til London yfir á þriðjudaga og laugardaga.
Þeir Bretar sem vilja fljúga beint norður í vetur geta því valið á milli ferða þangað frá þessum tveimur borgum. Þeir Bretar sem nýttu sér Íslandsflug beint til Akureyrar í ársbyrjun 2018 og 2019 komu hins vegar frá mun minni borgum.
Þá sátu nefnilega flestir í þotunum sem flugu frá Humberside en sú borg er í tveggja tíma aksturfjarlægð frá Manchester flugvelli. Næstflestir flugu norður frá Bournemouth sem er syðst á Englandi.
Næst á eftir komu borgirnar Newcastle og Leeds eins og sjá má listanum hér fyrir neðan. Hann byggir á upplýsingum frá breskum flugmálayfirvöldum. Sambærilegar upplýsingar eru ekki opinberar hér á landi og úrskurðarnefnd upplýsingamála fellst ekki á kröfu Túrista um að taka upp sömu siði hér á landi.