Samfélagsmiðlar

Íslensku félögin bíða enn eftir nýju leiguvélunum

Flugflotar Icelandair og Play eru í dag ekki eins og lagt var upp með fyrir sumarvertíðina.

Sumaráætlun Play byggist á því að félagið hafi sex flugvélar til umráða sem ferja munu farþega til tuttugu og eins áfangastaðar í Norður-Ameríku og Evrópu.

Ennþá er Play aðeins með fimm farþegaþotur og það er ekki von á þeirri sjöttu fyrr en í lok þessa mánaðar samkvæmt upplýsingum frá félaginu. Af þeim sökum hefur Play tekið á leigu eldri gerð af Airbus þotu til að fylla í skarðið næstu vikur.

Sú flugvél er í eigu búlgörsku flugvélaleigunnar Fly2sky og kemur til landsins í dag. Flugmenn Fly2sky munu fljúga þotunni á leigutímanum en flugfreyjur og -þjónar Play verða við störf í farþegarýminu.

Stjórnendur Play hættu nýverið við að leigja langdræga Airbus þotu sem nota átti í áætlunarflug til Flórída. Þær ferðir voru felldar niður í framhaldinu og í staðinn leigði Play minni þotu og það er sú sem nú er beðið eftir.

Hjá Icelandair hefur biðin eftir tveimur nýjum Boeing Max þotum reynst lengri en upphaflega var gert ráð fyrir. Flugvélarnar áttu að koma hingað í vor samkvæmt tilkynningu sem Icelandair sendi frá sér í ársbyrjun. Vélarnar eru í eigu flugvélaleigu í Dubaí en kom beint hingað til lands frá verksmiðjum Boeing í Seattle. Hjá Icelandair er gert ráð fyrir vélunum síðar í þessum mánuði og verða þær í framhaldinu standsettar í viðhaldsstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli.

Með þessum tveimur nýju þotum verða fjórtán Boeing Max þotur í flota Icelandair en þessar flugvélar eru mun sparneyttari en gömlu Boeing 757 þoturnar sem hafa verið uppistaðan í flota flugfélagsins síðustu áratugi. Og nú þegar verð á eldsneyti er í hæstu hæðum munar um eyðslugrennri farþegaþotur enda kaupir Icelandair nærri allt sitt eldsneyti á verði dagsins. Svokallaðar eldsneytisvarnir félagsins renna nefnilega að mestu út nú í lok júní.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …