Samfélagsmiðlar

Nú nota „ferðamenn“ greiðslukortin tvöfalt meira í verslunum en hjá almennum ferðaþjónustufyrirtækjum

Túristi hefur að undanförnu bent á sérkennilega þróun í notkun erlendra greiðslukorta á landinu. Nú hefur málið verið tekið til skoðunar hjá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

Erlend kortavelta í dagvöruverslunum nam 2,2 milljörðum í júlí.

Á sama tíma og erlend kortavelta á hótelum, bílaleigum og veitingastöðum hækkar þá minnka kortaviðskiptin hjá ferðaskrifstofum og öðrum sem skipuleggja ýmis konar afþreyingu fyrir ferðamenn. Skýringin á þessari þróun liggur að hluta til í þeirri staðreynd að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki hafa flutt viðskipti sín frá íslenskum færsluhirðum líkt og Túristi hefur áður greint frá.

Í nýliðnum júlí nam erlenda kortavelta hjá þessum hópi ferðaþjónustufyrirtækja aðeins 3,1 milljarði króna.

Á sama tíma árin fyrir heimsfaraldur var veltan aftur á móti nærri tveimur milljörðum hærri og þá á pari við veltuna í flokknum „Verslun“ í gagnagrunni Rannsóknarseturs verslunarinnar. Núna er erlenda kortanotkunin í verslunum landsins hins vegar orðin tvöfalt hærri því í júlí nam hún nærri 6,2 milljörðum króna.

Þessi þróun er ekki bara bundin við júlí því síðustu þrjá mánuði hefur erlenda kortavelta í verslunum verið um 13,7 milljarðar á meðan almennu ferðaþjónustufyrirtækin hafa aðeins tekið við greiðslum með kortum uppá 8,4 milljarða kr. Í maí til júlí árin 2018 og 2019 var veltan í verslununum töluvert minni en hjá almennu ferðaþjónustufyrirtækjunum.

Það er Rannsóknarsetur verslunarinnar (RSV) sem tekur saman kortaveltuna og byggir hana á upplýsingum frá íslenskum færsluhirðum. Notkun útlendra greiðslukorta er eignuð „erlendum ferðamönnum“ í gagnagrunni rannsóknarsetursins jafnvel þó hluti veltunnar tengist Íslendingum með erlend kort og svo útlendingum sem versla í íslenskum netverslunum.

Hvað sem þeirri skilgreiningu líður þá er ljóst að flokkurinn „ýmis ferðaþjónustu“ hefur dregist verulega saman líkt og Túristi hefur áður bent á og til að mynda kallaði Skarphéðinn Berg Steinarsson, ferðamálastjóri, eftir mati á mögulegri skekkju í gagnasafninu.

Og nú er málið til skoðunar hjá RSV samkvæmt svörum við fyrirspurn Túrista. Þar segir að fyrirspurnir hafi verið sendar færsluhirða og Samtaka ferðaþjónustunnar um málið. Í svarinu er einnig tekið fram að skýringarnar á minni veltu í flokknum „ýmis ferðaþjónusta“ geti verið ýmsar og fleiri en aðeins flutningur viðskipta til erlendra færsluhirða. Neysluhegðun ferðamanna gæti þannig hafa breyst.

Eins og gefur að skilja þá ganga margir ferðamenn frá kaupum á skoðunarferðum og afþreyingu áður en ferðalagið hefst og þá jafnvel í gegnum erlendar sölusíður. Þess háttar ferðir er líka oft hluti af pakkaferðum sem erlendar ferðaskrifstofur selja. Sú þróun er ekki ný af nálinni og tölurnar hér fyrir ofan ættu því að vera samanburðarhæfar á milli ára.

Líklegasta skýringin á þessari þróun liggur því væntanlega í þeirri staðreynd að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og söluaðilar á afþreyingu hafa flutt viðskipti sín til erlendra færsluhirða líkt og Túristi benti á fyrr í sumar.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …