Samfélagsmiðlar

Staðfesta að fargjöldin hafi verið óvenju há

Icelandair birtir í dag uppgjör fyrir á sumarvertíðinni. Búast má við að tekjur félagsins hafi verið í hæstu hæðum líkt og hjá svo mörgum öðrum flugfélögum.

Tekjur flugfélaga af hverju sæti hafa verið háar að undanförnu og til viðbótar hafa þoturnar verið þéttsetnari en oft áður.

Þessa dagana kynna bandarísk og evrópsk flugfélög uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung, tímabilið júlí til september. Reksturinn þarf að skila umtalsverðum hagnaði á þessum fjórðungi til að bæta upp tapið á öðrum tímabilum og óhætt er að segja að forstjórar flugfélaganna séu kampakátir með afkomuna í sumar. Sérstaklega tekjuhliðina því þar hafa menn sjaldan séð annað eins.

Rauði þráðurinn í uppgjörum flugfélaga eins og Delta, United og Lufthansa er nefnilega sá að farþegatekjurnar séu hærri en áður þrátt fyrir færri flugferðir en fyrir heimsfaraldur. Uppgjörin staðfesta það sem neytendur hafa fundið fyrir, fargjöldin hafa rokið upp. Engu að síður ferðast fólk enda fegið að vera laust við sóttvarnaraðgerðir.

Og hið háa farmiðaverð einkenndi ekki bara í júlí og ágúst, þegar flestir voru ferðinni, heldur líka í september. Í þeim mánuði voru fargjöldin í Bandaríkjunum til að mynda hærri en þau hafa verið á þessum tíma árs í 8 ár samkvæmt Financial Times. Í grein blaðsins er jafnframt bent á að takmarkað framboð haldi fargjöldunum uppi á sama tíma og eftirspurn sé meiri en forsvarsmenn flugfélaganna hafi almennt þorað að vona.

Samanburður við 2019 gefur ekki skýra mynd

Á Keflavíkurflugvelli voru batamerkin í september þó ekki eins skýr og þau voru mánuðina á undan þegar borið er saman við metárið 2018 eins og Túristi rakti nýverið. Samanburður við árið 2019 gefur ekki eins góða mynd af stöðunni því það ár einkenndist af mikilli niðursveiflu í íslenskum flug- og ferðageira vegna falls Wow Air.

Og það þýðir ekkert að horfa til ársins 2019 þegar skoða á þróun tekna hjá Icelandair. Stjórnendur félagsins bókfærðu nefnilega skaðabætur frá Boeing, vegna galla í Max-þotunum, sem sem farþegatekjur þetta ár. Það eru því bara stjórnendur flugfélagsins sem vita hverjar farþegatekjurnar voru í raun og veru árið 2019.

Kostnaðurinn líka hærri

Þessar óvenju háu tekjur flugfélaga að undanförnu eru kærkomnar enda sérstaklega dýrt að dæla eldsneyti á þoturnar. Þessari kostnaðarhækkun hafa flugfélögin hingað til komið út í verðlagið en nú er að sjá hvort neytendur muni áfram sætta sig við há fargjöld á sama tíma og efnahagsástandið er víða að versna, sérstaklega í Evrópu.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …