Samfélagsmiðlar

Ríflega sexfalt hærra eldsneytisálag

Icelandair reiknar með mun meiri í eldsneytisgjald á hvern farþega en Play.

Um langt árabil hefur Icelandair eyrnamerkt hluta af farmiðaverðinu sem gjald sem ganga á upp í kaup á eldsneyti á þotur félagsins. Í lok síðustu viku tilkynnti félagið ferðaskrifstofum að ætlunin væri að hækka þetta gjald umtalsvert nú um mánaðamótin.

Og nú er þessi boðaða hækkun komin inn í farmiðaverðið. Þar með nemur eldsneytisálagið 13.800 krónum ef flogið er héðan til Evrópu og heim aftur og 24.600 kr. ef ferðast er vestur um haf. Algengt er að gjaldið nemi því um þriðjungi af heildarfarmiðaverðinu þegar horft er til ferðalaga nú í vor.

Hjá Play er nýtilkomið eldsneytisálag reiknað út frá fluglengd en ekki því hvort flogið til evrópskra eða amerískra borga. Engu að síður er það miklu lægra en hjá keppinautnum. Þannig er gjaldið 2.569 krónur af heildarfarmiðaverðinu ef flogið er til Berlínar í byrjun maí en 3.859 kr. þegar farið er til Boston. Þessar upphæðir nema vanalega innan við tíund af algengu farmiðaverði nú í vor samkvæmt athugun Túrista.

Í samanburði við Icelandair er gjaldið hjá Play því mun lægra líkt og Birgir Jónsson, forstjóri þess síðarnefnda, ræddi hér á síðum Túrista fyrr í vikunni. Þar sagði hann að gjaldið hjá Icelandair hefði verið hátt fyrir hækkun en hann vissi ekki hverjar forsendurnar væru hjá keppinautnum.

„Fyrir okkur er þetta einfalt dæmi. Við teljum að þessar hækkanir tengdar stríðinu í Úkraínu muni auka kostnaðinn okkar um 10 milljónir bandaríkjadollara (um 1,3 milljarðar kr.) á þessu ári. Við munum fljúga með um eina milljón farþega á árinu og því er gjaldið reiknað miðað við það og aðrar slíkar forsendur nú í lok mars,“ útskýrði Birgir.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …