Samfélagsmiðlar

Kaupa sæti í ferðir keppinautsins til og frá Keflavíkurflugvelli

Nú eru það rútur tveggja en ekki þriggja fyrirtækja sem keyra jafnt og þétt milli höfuðborgarinnar og Leifsstöðvar.

Ennþá er unnið að samruna rútufyrirtækjanna Reykjavik Sightseeing og Allrahanda Gray Line en líkt og Túristi greindi frá um miðjan ágúst er ætlunin að móðurfélag þess fyrrnefnda, PAC1501 ehf. sem er í eigu framtakssjóðs á vegum Landsbréfa, verði langstærsti hluthafinn í sameinuðu félagi.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem horft er til samruna fyrirtækjanna tveggja því það ferli var komið langt á veg í árslok 2019 þegar upp úr viðræðum slitnaði.

Á þeim tíma hafði Samkeppniseftirlitið gefið grænt ljós fyrir viðskiptunum en Reykjavik Sightseeing og Allrahanda Gray Line eiga í samkeppni í akstri með ferðamenn á mörgum sviðum. Bæði hafa til að mynda sinnt sætaferðum milli höfuðborgarinnar og Leifsstöðvar.

Nú eru keyra hins vegar rútur Allrahanda Gray Line ekki lengur þessa leið. Í staðinn kaupir fyrirtækið sæti í ferðum Reykjavik Sightseeing til og frá Keflavíkurflugvelli að sögn Þóris Garðarssonar, stjórnarformanns Allrahanda Gray Line. Hann bætir við að fyrirtækið sæki sem fyrr farþega á hótel og stoppistöðvar á höfuðborgarsvæðinu en keyri svo að rútustöð Reykjavik Sightseeing við Skógarhlíð.

Aðspurður segir Þórir að Allrahanda Gray Line innheimti bæði og skili virðisaukaskatti af þessu sætaferðum líkt og áður. Það hefur Reykjavik Sightseeing aftur á móti ekki gert þar sem stjórnendur fyrirtækisins hafa litið á ferðirnar til Keflavíkurflugvallar sem almenningssamgöngur og þar með eigi þær að vera undanþegnar virðisaukaskatti. Á þau rök féllst þó Skatturinn ekki líkt og Túristi greindi frá í sumar. Ekki hafa fengist upplýsingar um hvar það skattamál er statt í kerfinu í dag.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …