Samfélagsmiðlar

Útlendingar með fjórðungs hlut

Það var í apríl 2019 sem bandarískur fjárfestingasjóður, PAR Capital Management, keypti nærri 12 prósent hlut í Icelandair og varð stærsti hluthafinn. Bréfin sem sjóðurinn keypti voru gefin út sérstaklega vegna viðskiptanna en þegar þarna var komið við sögu voru hluthafarnir í Icelandair rétt um þrjú þúsund talsins og allir íslenskir.

Óhætt er að segja að staða flugfélagsins hafi verið snúin á þessum tímapunkti því nokkrum vikum áður en PAR Capital keypti sín bréf þá varð Wow Air gjaldþrota og Boeing Max þotur Icelandair voru kyrrsettar.

Það grunaði þó fæsta að þoturnar fengju ekki að fara í loftið aftur fyrr en nærri tveimur árum síðar. Og auðvitað sá enginn fyrir Covid-19 faraldurinn sem var handan við hornið en þegar landamærum var lokað í mars 2020 datt botninn úr rekstri Icelandair.

Flugfélagið þurfti því á auknu fé að halda og haustið 2020 var ráðist í stórt hlutafjárútboð en PAR Capital tók ekki þátt og seldi þau bréf sem sjóðurinn átti. Þar með hvarf útlendingurinn út hluthafahópnum.

Meðal Íslendinga var aftur á móti stemning fyrir útboðinu og til marks um það þá fjölgaði hluthöfunum um rúmlega 10 þúsund. Fleiri hafa svo bæst við því í dag eru hluthafarnir 15.598 samkvæmt því sem fram kom í fjárfestakynningu stjórnenda Icelandair á föstudaginn.

Þar kom líka fram að útlendingar fara samanlagt fyrir 26 prósenta hlut í Icelandair sem er þá ríflega tvöfalt meira vægi en PAR Capital hafði á sínum tíma. Og af þessum 26 prósentum eiga bandarískir fjárfestingasjóðir alla vega 22,26 prósent. Þar er Bain Capital Credit langstærstur með 17,2 prósent.

Sú eign er reyndar skráð á írskt skúffufélag og það kann að skýra afhverju stjórnendur Icelandair birtu ekki upplýsingar um hvernig erlenda eignhaldið skiptist milli landa eða heimsálfa. Því samkvæmt reglum ESB, sem einnig gilda á hér á landi, þá verða evrópsk flugfélög að vera að meirihluta í eigu evrópskra hluthafa. Bandarískir fjárfestar geta því ekki eignast meira en 49 prósent hlut líkt og fjallað var um á sínum tíma í tengslum við mögulega fjárfestingu Indigo Partners í Wow Air.

Breytingar á hluthafahópi Icelandair samkvæmt því sem fram kom í fjárfestakynningu 3. febrúar.
Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …